14.07.06 - 20:00
Magnús Már Einarsson
Sodje til Reading (Staðfest)

Sam Sodje

Mynd: Getty Images

Sam Sodje

Mynd: Getty Images
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson hafa fengið auka samkeppni um sæti í byrjunarliði Reading en liðið sem vann sér sæti í ensku úrvalsldeildinni í vor gekk í dag frá kaupunum á Sam Sodje frá Brentford.
Reading borgar 350 þúsund pund fyrir þennan 27 ára Nígeríumann en sú upphæð getur hækkað upp í 500 þúsund pund. Sodje lék 100 leiki fyrir Brentford eftir að hann kom frítt til liðsins frá Margate í maí 2004.
,,Það er draumur hvers leikmanns að spila í úrvalsdeildinni og ég er ánægður með að fá það tækifæri," sagði Sodje en hann hafnaði tilboði um að fara til Southampton í félagaskiptaglugganum í janúar.
,,Það er draumur hvers leikmanns að spila í úrvalsdeildinni og ég er ánægður með að fá það tækifæri," sagði Sodje en hann hafnaði tilboði um að fara til Southampton í félagaskiptaglugganum í janúar.
