14.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ailton til Duisburg (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski framherjinn Ailton sem var markahæstur í Bundesligunni árið 2004 með Werder Bremen er kominn aftur til Þýskalands en hann hefur gengið til liðs við nýliða Duisburg.
Þessi 33 ára gamli leikmaður var síðast hjá Rauðu Stjörnunni í Belgrad en hann hefur núna gert eins árs samning við Duisburg.
Ailton varð fyrsti erlendi leikmaðurinn til að vera valinn leikmaður ársins í Þýsklaandi en það gerði hann árið 2004 þegar hann fór fyrir Werder Bremen og skoraði 28 mörk þegar að liðið sigraði bæði í deild og bikar.
Ailton skoraði 8 mörk í 13 leikjum með Grasshopper í Sviss þar sem hann var á láni á síðustu leiktíð en hann hefur alls gert 105 mörk í 211 leikjum í þýsku Bundesligunni.

Heimild: Reuters