14.07.09 - 12:35
Magnús Már Einarsson
Rúrik Gíslason til OB (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska úrvalsdeildarfélagið OB frá Odense hefur keypt Rúrik Gíslason frá Viborg og hefur hann gert samning við félagið til ársins 2014.
OB er eitt stærsta félagið í Danmörku en liðið endaði í öðru sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Nokkrir aðrir erlendir leikmenn eru hjá félaginu og þar má meðal annars nefna Eric Djemba-Djemba fyrrum leikmann Manchester United.
,,Þessi félagaskipti gera mikið fyrir mig. Þetta er ný og spennandi reynsla fyrir mig og ég vona þetta muni gera mér gott,\" sagði Rúrik sem mun leika í treyju númer 21 hjá OB.
,,OB er mjög stórt félag. Þetta er eitt stærsta félag Danmerkur og það er heiður að þeir höfðu áhuga á að fá mig.\"
Nokkur félög höfðu sýnt Rúrik áhuga og forráðamenn OB eru ánægðir með að hafa náð að krækja í þennan 21 árs gamla framherja.
,,Rúrik Gíslason styrkir hópinn og við erum ánægðir með að fá hann í okkar raðir,\" sagði Kim Brink, yfirmaður íþróttamála hjá OB á fréttamannafundi í dag.
Rúrik kom til Viborg frá Charlton sumarið 2007 en áður var hann á mála hjá Anderlecht í Belgíu og uppeldisfélagi sínu HK.
Á ferli sínum með Viborg skoraði Rúrik 17 mörk í 47 leikjum og var einn af betri mönnum liðsins.

Heimild: Bold | Heimasíða OB