14.07.09 - 12:47
Magnús Már Einarsson
Carlos Tevez til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur staðfest kaupin á argentínska framherjanum Carlos Tevez en hann er núna búinn að standast læknisskoðun hjá félaginu.
Tevez mun vera kynntur til sögunnar á fréttamannafundi í Manchester klukkan 13:00.
Hann mun síðan á morgun fara með liðinu í æfingaferð til Suður-Afríku en þar mun City leika þrjá leiki.
Tevez, sem er 25 ára, hefur undanfarin tvö ár verið í láni hjá Manchester United en nú hefur hann gengið í raðir nágrannanna þar sem hann mun leika í treyju númer 32.
Tevez skoraði alls 34 mörk í 99 leikjum með Manchester United en áður lék hann með West Ham, Boca Juniors og Corinthians.

Heimild: Heimasíða Manchester City