Fotbolti.net
14.07.09 - 13:47
Hafliði Breiðfjörð

Elías Ingi Árnason frá ÍBV til ÍR (Staðfest)

Elías Ingi í leik með ÍR síðasta sumar.

Elías Ingi í leik með ÍR síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

,,Það var allan tímann ljóst hjá mér að ef ég færi til baka þá færi ég til ÍR, það er liðið mitt og maður finnur það best þegar maður situr á bekknum annarsstaðar,\" sagði framherjinn Elías Ingi Árnason sem í dag gekk aftur í raðir ÍR frá ÍBV.
Elías Ingi var markakóngur 2. deildar karla með ÍR á síðustu leiktíð en gekk til liðs við ÍBV í vetur. Hann fékk mjög lítil tækifæri með eyjamönnum og spilaði aðeins 55 mínútur í 11 deildarleikjum og tveimur bikarleikjum. Þar af náði hann aðeins að spila 8 mínútur á heimavelli ÍBV, Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

,,Ég talaði um þetta við stjórn og þjálfara ÍBV og þeir vildu ekki standa í vegi fyrir að ég færi og spilaði annarsstaðar. Það hefði verið annað ef ég hefði verið tvítugur og hafa nægan tíma til að sanna sig en þegar maður er 26 ára vildi ég fá að spila,\" sagði hann en hann er ekki lánaður til ÍR heldur skiptir alveg og fær leikheimild fyrir leikinn gegn HK á föstudag.

Elías Ingi skoraði 21 mörk í 19 leikjum með ÍR á síðustu leiktíð en liðið hefur skorað mikið í sumar en ekki gengið nógu vel varnarlega. Hann snýr nú aftur til Breiðhyltinganna.

,,Ég hlakka til að raða inn mörkum í Mjóddinni,\" sagði hann. ,,En þeir spila svo goðan sóknarbolta núna og ég verð að vinna mér sæti þar. Þeir hafa spilað rosalega vel sóknarlega. Það er reyndar spurning hvort Laugi (Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR) sé að fá mig til að vera í bakverðinum,\" grínaðist Elías Ingi sem sendi að lokum góðar kveðjur til ÍBV sem hann kveður núna.

,,Ég óska ÍBV alls hins besta og hef fulla trú á að þeir haldi sér í Pepsi-deildinni. Það hefur allt verið i toppstandi þar og allir komið vel fram við mig. Eina vandamálið er að ég hef ekki fengið að spila. Ég skil mjög sáttur við Vestmannaeyjar,\" sagði hann að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.