14.07.11 - 07:40
Magnús Már Einarsson
Elmar Dan í KA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KA úr fyrstu deild hefur fengið Elmar Dan Sigþórsson til liðs við sig frá Førde í Noregi.
Elmar Dan lék með KA í áraraðir áður en hann fór til Noregs árið 2009 og gekk í raðir Tornado Måløy. Síðar það ár gekk hann síðan til liðs við Førde í norsku annarri deildinni.

,,Ég er gríðarlega ánægður að fá Elmar til liðs við sitt uppeldisfélag, hann er bæði reyndur leikmaður og mikill leiðtogi, hann á eftir að nýtast okkur mjög vel í þeirri baráttu sem framundan er,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA við Fótbolta.net.
Elmar Dan, sem er 29 ára, lék sem framherji í byrjun ferilsins en undanfarin ár hefur hann verið miðvörður.
Auk KA spilaði hann eitt tímabil með Fjarðabyggð og eitt tímabili með Víkingi R.
Elmar Dan fær leikheimild með KA þegar félagaskiptaglugginn opnar á morgun og hann getur því leikið með liðinu gegn Leikni R. í fyrstu deildinni á laugardag.