Fotbolti.net
14.07.11 - 18:29
Magnús Már Einarsson

Jónmundur Grétarsson í Gróttu (Staðfest)

Jónmundur Grétarsson í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Grótta hefur fengið framherjann Jónmund Grétarsson til liðs við sig frá BÍ/Bolungarvík.

Jónmundur skoraði eitt mark í þremur leikjum með BÍ/Bolungarvík í sumar en hann hefur ekki leikið með liðinu undanfarnar vikur.
Í fyrra skoraði Jónmundur tíu mörk í jafnmörgum leikjum með BÍ/Bolungarvík í annarri deildinni.

Jónmundur hefur einnig leikið með Haukum og Stjörnunni hér á landi á ferli sínum.

Grótta hefur skoraði fæst mörk í fyrstu deildinni í sumar eða átta talsins og Jónmundur er fenginn til félagsins til að fjölga mörkunum

Jónmundur hefur möguleika á að opna markareikning sinn með Gróttu strax annað kvöld en þá tekur liðið á móti Þrótti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.