14.08.11 - 09:08
Magnús Már Einarsson
Benjani til Portsmouth (Staðfest)

Benjani er mættur aftur til Portsmouth.

Mynd: Getty Images

Benjani er mættur aftur til Portsmouth.

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur gert eins árs samning við framherjann Benjani Mwaruwari.
Benjanji, sem er frá Zimbabwe, kemur frítt til Portsmouth frá Blackburn Rovers.
Þessi 33 ára gamli leikmaður var kynntur til leiks fyrir leik Portsmouth og Brighton í gær.
Benjanji, sem er frá Zimbabwe, kemur frítt til Portsmouth frá Blackburn Rovers.
Þessi 33 ára gamli leikmaður var kynntur til leiks fyrir leik Portsmouth og Brighton í gær.
Benjani þekkir vel til hjá Portsmouth því hann kom til félagsins frá Auxerre í Frakklandi á 4,1 milljón punda í janúar 2006.
Eftir að hafa skorað 19 mörk í 77 leikjum með Portsmouth fór hann síðan til Manchester City árið 2008.
Eftir að hafa skorað 19 mörk í 77 leikjum með Portsmouth fór hann síðan til Manchester City árið 2008.
Heimild: BBC
