Birgir Steinn á leið heim í KR?

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Birgir Steinn Styrmisson á leið heim í KR eftir tvö ár hjá ítalska félaginu Spezia.
Birgir er unglingalandsliðsmaður, varnarmaður, sem fór til Ítalíu í ágúst 2021.

Hann hefur spilað með Primavera liði Spezia (vara- og unglingaliði) undanfarna tvo vetur og skorað tvö mörk í 26 leikjum.
Hann var hluti af U19 landsliði Íslands í forkeppninni fyrir EM 2019, byrjaði tvo af þremur leikjum liðsins þar en missti af milliriðlinum vegna meiðsla og missti einnig af lokamótinu.
Alls á hann að baki átján leiki fyrir unglingalandsliðin. Hann kom við sögu í einum leik með KR í Mjólkurbikarnum 2020 og einum deildarleik sumarið 2021.