14.09.06 - 10:37
Magnús Már Einarsson
Scaloni til Racing Santander (Staðfest)

Scaloni tæklar Ruud van Nistelrooy í leik fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images

Argentínumaðurinn Lionel Scaloni hefur gert eins árs samning við spænska félagið Racing Santander en þessi 28 ára gamli leikmaður losnaði undan samningi hjá Deportivo La Coruna í síðasta mánuði.
Scaloni kom til Depor frá Estudiantes de La Plata árið 1998 og var í liðinu sem sigraði spænsku deildini 2000 og bikarinn 2002.
Scaloni var í hópnum hjá argentínska landsliðinu í sumar en í fyrra datt hann niður goggunarröðina hjá Joaquin Caparros þjálfara og spilaði hann síðari hluta tímabilsins á láni hjá West Ham United.
Racing rétt náði að bjarga sér frá falli í spænsku deildinni í fyrra en félagið hefur ekki byrjað vel í vetur og tapað fyrstu tveimur deildarleikjum sínum.