14.09.06 - 15:21
Magnús Már Einarsson
Danny Mills til Hull (Staðfest)

Mills hatar ekki að taka þátt í smá ryskingum og hér er hann í léttum slagsmálum við Ronnie Wallwork.

Mynd: Getty Images

Hull í ensku fyrstu deildinni hefur fengið varnarmanninn og fyrrum enska landsliðsmanninn Danny Mills að láni frá Manchester City næstu tvo mánuðina.
Þessi 29 ára gamli leikmaður kom frítt til City frá Leeds í júlí árið 2004. Hann hefur misst sæti sitt í byrjunarliði City til Micah Richards en Hatem Trabelsi er síðan næstur inn í hægri bakvörðinn.
,,Ég þekki Danny frá tíma hans hjá Leeds. Hann er stórt skref fyrir okkur. Hann hefur mikið af reynslu," sagði Adam Pearson formaður Hull við Yorkshire Post.
Mills gæti leikið sinn fysta leik með Hull á föstudaginn þegar að liðið tekur á móti Sheffield Wednesday.