14.09.09 - 15:34
Magnús Már Einarsson
Heiðar Helguson til Watford (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Heiðar Helguson, framherji QPR og íslenska landsliðsins, hefur gengið til liðs við Watford á láni til áramóta en þetta kemur fram á fréttavef Morgunblaðsins.
Heiðar þekkir vel til Watford því að hann lék með liðinu frá 1999-2005 en á þeim tíma skoraði hann 55 mörk í 174 leikjum.
Árið 2005 gekk Heiðar í raðir Fulham og fyrir tveimur árum fór hann til Bolton Wanderers.
Þar fékk Heiðar fá tækifæri og hann gekk til liðs við QPR á láni síðastliðinn vetur áður en félagið keypti hann í sínar raðir.
Heiðar verður ekki með Watford gegn Plymouth en hann ætti að geta leikið með liðinu gegn Leicester um næstu helgi.

Heimild: Fréttavefur Morgunblaðsins