14.10.09 - 12:40
Magnús Már Einarsson
Kristján Ómar Björnsson í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Haukar hafa fengið Kristján Ómar Björnsson til liðs við sig frá Þrótti en leikmaðurinn hefur skrifað undir þriggja ára samning.
Þessi 28 ára gamli varnar og miðjumaður þekkir vel til hjá Haukum því að hann lék með liðinu frá 2002-2007.
Eftir að hafa hjálpað Haukum að komast upp úr annarri deild árið 2007 gekk Kristján Ómar í raðir Þróttar.
Hann lék alla leiki liðsins í fyrra og í ár missti hann einungis af einum leik í Pepsi-deildinni.
Kristján Ómar er annar leikmaðurinn sem Haukar fá síðan að þeir tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni en í síðustu viku kom Guðmundur Viðar Mete til félagsins frá Val.