Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 14. október 2019 19:14
Brynjar Ingi Erluson
Mandzukic mun gera eins og hálfs árs samning við Man Utd
Búist er við því að Mario Mandzukic fari frá Juventus í janúar
Búist er við því að Mario Mandzukic fari frá Juventus í janúar
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnufélagið Manchester United er í viðræðum við Juventus um kaup á króatíska framherjanum Mario Mandzukic en Goal.com greinir frá því.

Mandzukic er 33 ára gamall og hefur spilað með félögum á borð við Bayern München, Atlético Madrid, Wolfsburg og Dinamo Zagreb.

Hann hefur gert 44 mörk í 162 leikjum með Juventus en leikstíll hans hentar ekki Maurizio Sarri, þjálfara Juventus, og er honum því frjálst að fara.

Man Utd hefur verið í viðræðum við Juventus en talið er að Mandzukic komi til með að kosta 9 milljónir punda og mun hann gera eins og hálfs árs samning við enska félagið.

Mandzukic hefur ekki enn spilað mínútu á tímabilinu en Manchester United sem er í 12. sæti er í leit að öflugum framherja eftir að þeir Romelu Lukaku og Alexis Sanchez yfirgáfu félagið í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner