Nóg af Amorim tengdu slúðri - Arsenal horfir til Bayern - Chelsea horfir til Lecce - Gerrard ætlar að berjast
   mán 14. október 2024 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór Sveinn verður aðstoðarþjálfari Breiðabliks (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Sveinn hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og tekur við keflinu af Eyjólfi Héðinssyni sem er að koma til annarra starfa hjá Breiðabliki. Arnór Sveinn tekur við sem aðstoðarþjálfari að tímabilinu loknu en þá tekur Eyjólfur við sem deildarstjóri meistaraflokka hjá félaginu.

Arnór Sveinn er í dag leikmaður Breiðabliks, hann er 38 ára og leggur skóna á hilluna í lok tímabils.

Úr tilkynningu Breiðabliks:
Arnór Svein þarf ekki að kynna fyrir Blikum en hann hefur leikið 277 leiki fyrir félagið. Hans fyrsti leikur var árið 2003 og varð hann bikarmeistari með liðinu árið 2009 og Íslandsmeistari 2010. Arnór spilaði einnig sem atvinnumaður í Noregi og varð Íslandsmeistari með KR árið 2019. Hann sneri aftur til Breiðabliks árið 2022 og hefur spilað með liðinu síðan. Arnór Sveinn þekkir félagið og hópinn vel og það er afar ánægjulegt fá hann inn í þjálfarateymið sem aðstoðarþjálfara.

„Ég er gríðarlega stoltur af mínum tíma sem leikmaður og þeim þroska sem ég hef öðlast en nú finn ég að tímapunkturinn er réttur að stíga inní nýtt hlutverk. Ég hlakka til að vinna með Halldóri og teyminu í heild, strákana þekki ég vel og svo eru forréttindi að fá að starfa hjá mínu uppeldisfélagi," segir Arnór Sveinn.

Halldór Árnason þjálfari er virkilega sáttur: „Ráðningin á Arnóri er mikilvægt skref í að halda áfram á þeirri braut sem liðið hefur verið á síðastliðin ár. Arnór kemur með góða reynslu inn í teymið frá leikmannaferlinum þar sem hann átti frábæran feril innanlands, utanlands og með landsliðinu. Arnór hefur góða innsýn í hvað þarf til að ná árangri, hefur gríðarlega skemmtilega sýn á fótbolta og áhugasverðar hugmyndir um hvernig hann vill kenna leikinn. Arnór kemur til með að veita ungum leikmönnum okkar dýrmæta leiðsögn og hvatningu líkt og hann hefur gert vel síðastliðin ár sem leikmaður.síðastliðin ár sem leikmaður“.

Þá hefur einnig verið gengið frá áframhaldandi ráðningum á öðrum í þjálfarateyminu en Haraldur Björnsson, markmannsþjálfari og Eiður Ben Eiríksson hafa báðir framlengt sína samninga við Breiðablik. Helgi Jónas Guðfinnsson, styrktarþjálfari, er jafnframt ennþá í teyminu.
Athugasemdir
banner
banner