Fotbolti.net
14.11.06 - 13:43
Magnús Már Einarsson

Sigurður Jónsson ráðinn þjálfari Djurgarden (Staðfest)

Sigurður Jónsson ráðinn þjálfari Djurgarden (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Sigurður Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari sænska liðsins Djurgarden sem Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen leika með en frá þessu var greint á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu.
,,Ég er með mikinn persónulegan metnað og vil taka næsta skref sem þjálfari," sagði Sigurður við heimasíðu Djurgarden en hann tekur við þjálfun liðsins af Anders Gronhagen sem hefur verið tímabundið eftir að Kjell Jonevret hætti í september eftir mikla gagnrýni fjölmiðla og stuðningsmanna.

Paul Lindholm mun vera aðstoðarþjálfari Sigurðar og Tord Grip sem var aðstoðarmaður Sven-Goran Eriksson með enska landsliðið verður tæknilegur ráðgjafi hjá Djurgarden sem sigraði sænsku deildina árið 2005.

Sigurður sem hefur þjálfað FH, Víking og Grindavík hér á landi er núna út í Svíþjóð en hann mun nú koma til Íslands í viku áður en hann heldur utan. Hann mun síðan hefja störf fyrsta desember.

Á ferli sínum lék Sigurður yfir 60 landsleiki fyrir Íslendinga en hann spilaði meðal annars með Arsenal og Sheffield Wednesday í Englandi auk þess sem að hann spilaði með Örebrö í Svíþjóð.

Djurgarden varð eins og fyrr segir sænskur meistari í fyrra en í ár endaði liðið í sjötta sæti deildarinnar.

Heimild: Heimasíða Djurgarden

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.