Fotbolti.net
14.12.06 - 19:20
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Juninho til Flamengo (Staðfest)

Juninho í leik með Boro árið 2004

Juninho í leik með Boro árið 2004

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilísku risarnir hafa keypt hinn 33 ára gamla Juninho, fyrrum leikmann Middlesbrough og Celtic, en hann var einmitt á láni hjá félaginu árið 2002 þar sem hann skoraði fjórtán mörk í 28 leikjum.
Þessi skemmtilegi leikstjórnandi spilaði á sínum tíma 50 landsleiki fyrir Brasilíu og sagði hann að stærsta ástæðan fyrir að hann fór aftur til Flamengo er vegna þess að þeir komust í Copa Libertadores fyrir næsta ár.

,,Að spila í mikilvægum keppnum, og þá sérstaklega Copa Libertadores, er alltaf sérstakt. Ég vonast til þess að spila meira hjá Flamengo, ég er mjög ánægður að vera kominn aftur hingað. Ég elskaði að búa í Rio de Janeiro og ég er mjög ánægður að vera kominn aftur," sagði Juninho.

Heimild: Football 365

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.