14.12.07 - 17:26
Hafliði Breiðfjörð
Fabio Capello ráðinn þjálfari enska landsliðsins (Staðfest)

Verðugt verkefni
Það er krefjandi áskorun sem Capello á fyrir höndum.

Mynd: Getty Images

Ítalinn Fabio Capello hefur verið ráðinn nýr þjálfari enska landsliðsins en hann komst að samkomulagi við enska knattspyrnusambandið um skilmála samnings nú í dag og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra og hálfs árs samning við enska knattspyrnusambandið.
Samningurinn sem er talinn skila honum 6 milljónum punda á ári mun bjóða upp á leið út eftir árið 2010.
Capello sem er 61 árs gamall verður kynntur sem nýr þjálfari á fréttamannafundi á mánudag og hefur svo störf strax eftir jól, 7. janúar.
Aðstoðarmenn hans verða allir ítalskir en hann er að skoða hvernig hann getur tengt enska starfsmenn í lið sitt. Þannig sást Stuart Pearce þjálfari U21 árs landsliðsins í höfuðsstöðvum enska knattspyrnusambandsins í dag auk þess sem Alan Shearer, Tony Adams og David Platt hafa verið orðaðir við starfið.

Heimild: BBC