Fotbolti.net
15.01.08 - 08:36
Hafliði Breiðfjörð

Jens Elvar aftur í Þrótt frá Fylki (Staðfest)

Jens Elvar Sævarsson.

Jens Elvar Sævarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Jens Elvar Sævarsson er genginn í raðir uppeldisfélags síns, Þróttar, frá Fylki en þetta var staðfest á vefsíðu Fylkismanna í gær.
Jens Elvar átti eitt ár eftir af samningi sínum við Fylkismenn en félögin komust að samkomulagi um kaupverð og því var gengið frá því um helgina að leikmaðurinn gangi til liðs við Þróttara.

,,Knattspyrnudeild Fylkis vill nota tækifærið og þakka Jens fyrir góð kynni og þann tíma sem hann var í Árbænum, og óskar honum góðs gengið í framtíðinni," sagði á vefsíðu Fylkis í gær.

Jens Elvar hafði komið til Fylkis frá Þrótti í janúar 2006 en Þróttur lék í 1. deildinni það árið. Hann lék 11 leiki með Fylki í Landsbankadeildinni árið 2006 en í upphafi síðustu leiktíðar var hann lánaður til Fjarðarbyggðar.

Þar lék hann 8 leiki í 1. deildinni og einn í bikarnum áður en hann sneri aftur í bæinn og var lánaður beint frá Fylki til Þróttar 1. júlí. Hann lék 11 leiki með Þrótti í 1. deildinni og skoraði í þeim 2 mörk auk þess sem hann lék einn bikarleik með þeim. Hann skipti svo yfir í Fylki aftur er lánssamningurinn rann út í október.

Hann á að baki 44 leiki í efstu deild með Þrótti og Fylki og hefur skorað í þeim 2 mörk.

Jens Elvar er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Þróttar fyrir komandi leiktíð. Áður höfðu þeir fengið Sigmundur Kristjánsson frá KR, Dennis Danry frá Herfolge og Kristján Ómar Björnsson frá Haukum. Þeir hafa aðeins misst Skúla Jónsson sem sneri aftur í KR úr láni.

Heimild: Vefsíða Fylkis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.