Fotbolti.net
15.01.08 - 15:22
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Maniche til Inter á láni (Staðfest)

Maniche til Inter á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur fengið portúgalska miðjumanninn Maniche á láni frá Atletico Madrid út þetta tímabil og fjölmiðlar segja að ítalskö meistararnir hafi einnig forkaupsrétt á að kaupa leikmanninn næsta sumar á sex milljónir evra.
,,Maniche er leikmaður Inter. Í morgun fór hann í gegnum læknisskoðun og skrifaði undir samning til 30.júní 2008," sagði Inter á heimasíðu sinni í dag.

Maniche sem er þrítugur vann marga titla með Porto á sínum tíma og þá hefur hann leikið með Dynamo Moskvu og Chelsea.

Hann datt út úr liðinu hjá Atletico á dögunum og vildi fara til að fá að spila og styrkja stöðu sína í portúgalska landsliðinu fyrir EM næsta sumar.

Nokkrir miðjumenn Inter eiga við meiðsli að stríða og því ákvað liðið að fá Maniche. Patrick Vieira og Luis Figo eru báðir meiddir, Olivier Dacourt verður frá út tímabilið og Dejan Stankovic er nýbúinn að jafna sig af meiðslum.

Christian Chivu hefur þvi verið að leika á miðjunni en eftir komu Maniche getur hann farið aftur í vörnina og líklegt er að hann taki stöðu Walter Samuel sem gæti verið frá út tímabilið.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.