Fotbolti.net
15.01.08 - 15:43
Magnús Már Einarsson

Sunderland fær varnarmann frá PSG (Staðfest)

Mvoto tekur hressilega tæklingu í U19 ára landsleik með Frökkum.

Mvoto tekur hressilega tæklingu í U19 ára landsleik með Frökkum.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt franska varnarmanninn Jean-Yves Mvoto frá Pars St-Germain en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 19 ára gamli varnarmaður hefur einungis leikið með varaliði PSG á ferlinum og ekki fengið tækifæri með aðalliðinu.

Hann hefur hins vegar núna skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Sunderland.

,,Jean er framtíðarleikmaður. Hann er sterkur miðvörður og verður góð viðbót í okkar hóp," sagði Roy Keane stjóri Sunderland.

,,Þetta er stórt tækifæri. Ég er ánægður með að vera hér," sagði Mvoto glaður í bragði eftir að hafa gengið frá samningum við Sunderland.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.