15.01.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Seol Ki-Hyeon á láni frá Fulham til Sádi-Arabíu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Seol Ki-Hyeon framherji Fulham hefur verið lánaður til Al-Hilal í Sádi-Arabíu en lánsamningurinn gildir til loka tímabilsins.
Þessi þrítugi Suður-Kóreumaður kom til Fulham frá Reading sumarið 2007 og gerði þá þriggja ára samning.
Á síðustu leiktíð náði hann ekki að skora í tólf leikjum en á þessari leiktíð skoraði hann gegn Hull í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar.
Síðan þá hefur Seol hins vegar dottið niður goggunarröðina og síðasti leikur hans með Fulham var í október síðastliðnum.

Heimild: BBC