Fotbolti.net
15.01.09 - 11:38
Magnús Már Einarsson

Kevin Kilbane til Hull (Staðfest)

Kevin Kilbane til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt miðjumanninn Kevin Kilbane frá Wigan Athletic en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Kilbane, sem er 32 ára, stóðst læknisskoðun hjá Hull og skrifaði í kjölfarið undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.

Hjá Wigan hefur Kilbane ekki fengið að spila eins mikið og hann vildi og en hann vonast til að þessi félagaskipti hjálpi honum að fá meiri spilatíma.

Hull er einnig að reyna að fá Dean Whitehead frá Sunderland og þá er orðrómur um að Steve Finnan gæti verið á leið til félagsins frá Espanyol.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.