15.01.09 - 12:02
Magnús Már Einarsson
Gael Givet til Blackburn á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hefur fengið varnarmanninn Gael Givet á láni frá Marseille út tímabilið.
Blackburn á síðan möguleika á að kaupa Givet eftir að lánssamningurinn rennur út en þetta kom fram á heimasíðu Marseille í dag.
Givet er 27 ára gamall og getur leikið bæði sem miðvörður og vinstri bakvörður en hann á leiki að baki með franska landsliðinu.
Í vetur hefur Givet ekki fengið nein tækifæri með Marseille eftir að hafa leikið 29 leiki með liðinu á síðustu leiktíð.

Heimild: Sporting Life