Fotbolti.net
15.01.09 - 17:32
Magnús Már Einarsson

Liam Miller til QPR (Staðfest)

Liam Miller til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liam Miller, miðjumaður Sunderland, hefur gengið í raðir Queens Park Rangers á láni út leiktíðina.
Þessi 27 ára gamli Íri hefur verið fjórum sinnum í byrjunarliði Sunderland á leiktíðinni en hann hefur nú ákveðið að reyna sig hjá QPR.

,,Liam mun gefa okkur góða möguleika á miðjunni,\" sagði Paulo Sousa stjóri QPR.

,,Þetta eru frábær skipti fyrir mig. Félagið er á leið í rétta átt og þegar að þú horfir á leikmannahópinn þá getur þú séð gæðin sem eru hér,\" sagði Miller sem lék á sínum tíma með Manchester United.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.