Fotbolti.net
15.01.09 - 17:06
Magnús Már Einarsson

Marc-Antoine Fortune til WBA (Staðfest)

Samkeppnin minni fyrir Veigar hjá Nancy

Tony Mowbray stjóri WBA.

Tony Mowbray stjóri WBA.

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur fengið framerjann Marc-Antoine Fortune á láni frá Nancy út tímabilið.
Þessi 27 ára gamli leikmaður mun stökkva beint inn í leikmannahóp WBA fyrir leikinn gegn Middlesbrough á laugardag, svo framarlega sem hægt verði að klára öll pappírsmál í tæka tíð.

Fortune kom til Nancy árið 2007 og skoraði sex mörk fyrir liðið á síðustu leiktíð.

Þessi félagaskipti þýða að Veigar Páll Gunnarsson mun fá minni samkeppni um sæti í byrjunarliðinu hjá Nancy en hann gekk í raðir franska félagsins á dögunum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.