Fotbolti.net
15.02.07 - 18:22
Magnús Már Einarsson

Rúnar Páll semur við HK (Staðfest)

Úr leik HK og Fram síðastliðið sumar.

Úr leik HK og Fram síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Miðjumaðurinn Rúnar Páll Sigmundsson hefur gert tveggja ára samning við HK. Rúnar hefur verið í pásu frá fótboltanum síðan hann fótbrotnaði illa í leik með Stjörnunni fyrir þremur árum.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur einnig leikið með Fram hér á landi og Sogndal í Noregi en hann hefur leikið 141 deildarleik á Íslandi, þar af 52 í efstu deild. Hann hefur skorað níu mörk í efstu deild en HK mun leika í Landsbankadeildinni í sumar í fyrsta skipti í sögu félagsins.

,,Rúnar er í mjög góðu formi. Ég spilaði með honum 2003 í Stjörnunni og þá lenti hann í slæmum meiðslum en hann er í mjög góðu standi núna. Hann er búinn að æfa mjög vel núna og er í fínu standi," sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari HK við Fótboti.net um Rúnar í síðasta mánuði.

Þá hefur miðjumaðurinn Þorlákur Hilmarsson einnig fengið leikheimild með HK en þessi 23 ára leikmaður kemur úr Fylki.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.