Fotbolti.net
15.02.09 - 08:44
Brynjar Ingi Erluson

Fred til Fluminense (Staðfest)

Fred

Fred

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Fred sem leikur með Lyon í frönsku úrvalsdeildinni hefur samið við brasilíska liðið Fluminense.
Samkvæmt fréttamiðlum þá mun Fred klára kaupin á næsta laugardag þegar hann skrifar undir pappíra hjá Lyon sem gerir hann frjálsan frá félaginu, og mun Fluminense kynna hann fyrir fréttamönnum á sunnudagsmorgun.

Fred mun fá hvorki meira né minna en 100.000 evrur í vikulaun, og auk þess 3 milljónir evra við undirskrift. Samningurinn mun gilda til næstu fimm ára, en hann telur þetta frábæra leið til þess að koma sér í brasilíska landsliðið fyrir HM 2010.

Fred sem er 25 ára skoraði 34 mörk í 81 leik fyrir Lyon og hefur þá leikið 9 landsleiki fyrir Brasilíu og skorað 5 mörk.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.