15.02.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Halldór Bogason í KV (Staðfest)

Halldór Bogason í leik með Aftureldingu í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Í byrjun vikunnar var gengið frá félagaskiptum Halldórs Bogasonar úr KR í 2. deildarlið KV en um er að ræða lánssamning sem gildir út tímabilið.
Halldór hefur æft og leikið með KV frá áramótum og hefur hann nú ákveðið að skipta yfir í félagið en fleiri lið úr 1. og 2. deild höfðu áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir. Halldór sem er tvítugur er uppalinn í KR en lék stórt hlutverk í liði Aftureldingar í 2.deild á síðustu leiktíð.
Halldór getur bæði leikið sem miðvörður og miðjumaður og væntir KV mikils af honum á komandi tímabili.
Fyrr í mánuðinum var einnig gengið frá skiptum á Atla Vali Jóhannssyni úr KR og Guðmundi Erni Árnasyni úr Gróttu. Báðir eru þeir uppaldir í KR þar sem þeir léku upp alla yngri flokka
Auk þess var gengið frá endanlegum félagaskiptum Auðuns Arnar Gylfasonar úr KR en Auðunn lék stórt hlutverk í 3. deildarmeistaraliði KV í fyrra sem lánsmaður frá KR. Árið 2010 lék Auðunn einn leik í Pepsi deild karla með KR. Þeir Halldór, Atli og Auðunn léku allir með 2. flokks liði KR sem urðu Íslandsmeistarar 2009 og Bikarmeistarar 2010.
Allir leikmennirnir hafa leikið með í þeim æfingaleikjum sem KV hefur leikið í vetur.