15.02.12 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Bruno Uvini lánaður til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur hefur fengið brasilíska leikmanninn Bruno Uvini að láni frá Sao Paolo.
Uvini, sem er 20 ára gamall varnarmaður kemur til Tottenham og verður á láni út tímabilið en að láninu loknu getur félagið keypt hann á 3,1 milljón pund. Hann er þá mikilvægur partur af U20 ára liði Brasilíu.
Leikmaðurinn var ánægður með félagaskiptin, en draumur hans var alltaf að spila á Englandi og spila í Meistaradeild Evrópu.
,,Þetta frábæra tækifæri kom og ég gat ekki látið það framhjá mér fara. Ég var búinn að vera í viðræðum við Tottenham lengi og er liðið stórt á heimsmælikvarða og báðu þeir mig um að koma strax,\" sagði hann við heimasíðu Sao Paolo.

Heimild: Sky