15.02.12 - 18:30
Anton Ingi Leifsson
Emil Atlason úr FH í KR (Staðfest)

Bræðurnir Emil(t.v.) og Egill (t.h.).

Mynd: Heimasíða KR

Bræðurnir Emil(t.v.) og Egill (t.h.).

Mynd: Heimasíða KR
Emil Atlason, sonur Atla Eðvaldssonar, hefur gengið í raðir KR frá FH. Emil sem er 18 ára gamall hefur farið á kostum með öðrum flokki FH undanfarin ár og spilaði stóra rullu þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrra. Hann spilaði 16 leiki og skoraði 13 mörk.
Emil, sem er af mikilli knattspyrnuætt, spilaði æfingarleik með KR gegn Víking í haust og spilaði vel. Hann er bróðir Sifjar Atladóttur, landsliðskonu, og Egils Atlasonar, leikmann Víkings.
Hann hefur enn ekki komið við sögu hjá meistaraflokki í Íslandsmóti eða bikar.
Emil er fjórði leikmaðurinn sem KR fær í haust, en áður höfðu þeir Þorsteinn Már Ragnarsson, Haukur Heiðar Hauksson og Atli Sigurjónsson komið til liðsins.

Heimild: Vefur KR