Fotbolti.net
15.02.12 - 09:59
Anton Ingi Leifsson

Guðmundur Sævarsson í Hauka (Staðfest)

Guðmundur Sævarsson í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Guðmundur Sævarsson er genginn í raðir Hauka frá FH. Hann skrifaði undir eins árs samning í gær.

Guðmundur hittir hjá Haukum fyrrum þjálfara sinn hjá FH, Ólaf Jóhannesson, sem tók við Haukaliðinu í haust.
Guðmundur hefur alla sína tíð leikið með FH og spilað 199 mótsleiki og skorað 17 mörk. Hann hefur yfirleitt leikið sem bakvörður og leikið afar vel. Hann vann fimm Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla með FH.

Eftir að hann yfirgaf FH gaf hann það út að hugurinn leitaði í efstu deild en Haukar hafa náð að sannfæra hann um að koma yfir á Ásvelli.

Haukarnir, sem leika í 1. deild, eru til alls líklegir í sumar en þeir hafa styrkt sig með góðum og reynslumiklum leikmönnum. Sigurbjörn Hreiðarsson, Valur Fannar Gíslason og Magnús Páll Gunnarsson hafa allir gengið til liðs við Hafnarfjarðarliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.