15.02.12 - 16:45
Magnús Már Einarsson
Birkir Pálsson í Hött (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Birkir Pálsson, varnarmaður úr Þrótti, hefur gengið til liðs við nýliða Hattar í fyrstu deildinni. Þessi 28 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Huginn á Seyðisfirði og hann mun leika að nýju á Austurlandi næsta sumar.
Frá því árið 2005 hefur Birkir leikið með Þrótti en síðastliðið sumar spilaði hann 21 leik í fyrstu deildinni.
Samtals hefur Birkir leikið 153 deildar og bikarleiki á ferli sínum og skorað í þeim tvö mörk.
Birkir er fyrsti leikmaðurinn sem Höttur fær í sínar raðir frá því að liðið komst upp í fyrstu deildina síðastliðið haust en þó er einnig ljóst að framherjinn Högni Helgason mun leika með liðinu í sumar.
Högni hefur komið á láni frá Breiðabliki undanfarin tvö tímabil en hann hefur skipt yfir í Hött og getur líkt og Birkir leikið með liðinu gegn Þór í fyrsta leik í Lengjubikarnum á laugarag.
Varnarmaðurinn sterki Anton Ástvaldsson verður hins vegar líklega ekki með Hetti í sumar auk þess sem óvíst er með þá Ásgeir Þór Magnússon, Friðrik Inga Þráinsson og Runólf Svein Sigmundsson sem voru í láni hjá félaginu í fyrra.