Fotbolti.net
15.02.12 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Twitter dagsins - Aron Einar í veðmáli upp á gin

Ari Freyr Skúlason, leikmaður Sundsvall, að fá sér ermi.

Ari Freyr Skúlason, leikmaður Sundsvall, að fá sér ermi.

Canon

Mynd: Twitter

Wayne Rooney er búinn að finna nafn á veðhlaupahestinn sinn. Það er meðal efnis í Twitter dagsins þennan sallafína miðvikudag.


Halldór Gröndal, fótboltaáhugamaður:
Er launaniðurskurðurinn strax hafinn hjá vali, eða eru æfingarnar bara svona leiðinlegar? #arnarsveinn #börkurinn

Tómas Þór Þórðarson, blaðamaður á DV:
Verður eftirsjá af Arnari Sveini í sumar. Alltaf gaman að fylgjast með mönnum sem spila með hjartanu. Rauður frá toppi til táar. Bókstaflega

Þorkell Máni Pétursson, útvarpsmaður:
Arnar Sveinn ekki handbolti ..plís .. fótbolti er ok. En þér rennur blóðið til skyldunnar að fara í leiklist.#ogverðavinstrimaðurogfeministi

Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður hjá 365:
gaman að fylgjast með kyndingunum hjá bresku boltastjörnunum. Þetta er bara eins neðanbeltisborðtennis. #daglegtbrauð #talaðumþað

Arnar Már Guðjónsson, leikmaður ÍA:
Tevez segir að Mancini hafi komið fram við hann eins og hund. Veit ekki um marga hunda sem neita að elta bolta um grasvöll. #stoliðenfyndið

Tómas Leifsson, leikmaður Selfoss
Ég vil láta endurgera Judge Dredd! Sly leikur klárlega Dredd aftur. Þessi mynd þarf nýtt handrit og meira budget! #IAmTheLaw #IJudgedHim

Gunnar Sigurðarson, Gunnar á Völlum:
@AronGunnarsson1 kiss kiss Góður leikur í gær bláfugl. Settu samt á þig legghlífar vinur. Það er PortmanRoad um helgina. #kæfður

Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff:
@gunnarsigur hahahah!! Eg skal vera godur vid hneid a bullard.. Gambla kannski vid chopra fyrir leikinn.. Vid klarum thetta (stadfest)

Gunnar Sigurðarson, Gunnar á Völlum:
@AronGunnarsson1 Setjum eina Ginflösku undir þennan leik. Passaðu þig á Lee Martin, pínu snöggur fyrir þig. #bláfugladrit #3-1 #G&T #blikk

Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff:
@gunnarsigur ja gin flaska undir.. Alltaf til I gin.. #1-3 #audveldurutisigur

Wayne Ronney, leikmaður Manchester United:
Bara til að staðfesta það við alla þá hef ég skírt hestinn minn Switcharooney.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.