Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. febrúar 2020 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Neymar: Sancho er magnaður leikmaður
Neymar
Neymar
Mynd: Getty Images
Brasilíski leikmaðurinn Neymar er afar hrifinn af Jadon Sancho, leikmanni Borussia Dortmund í Þýskalandi, en þeir mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í lok febrúar.

Neymar hefur verið magnaður með PSG á leiktíðinni en hann hefur skorað 15 mörk og lagt upp 10 mörk í 18 leikjum.

Hann talaði afar vel um enska landsliðsmanninn Jadon Sancho fyrir leik PSG gegn Dortmund en Sancho hefur átt frábært tímabil með þýska liðinu.

Sancho hefur skorað 16 mörk og lagt upp 17 mörk í 30 leikjum en hann gæti þó yfirgefið félagið í sumar. Hann hefur verið orðaður við Chelsea, Liverpool og Mancester United.

„Dortmund er með leikmenn sem eru áhrifamiklir. Jadon er leikmaður sem ég elska að fylgjast með. Hann er frábær leikmaður með mikla hæfileika," sagði Neymar.

„Dortmund er með fullt af gæðaleikmönnum en hann er mjög sérstakur leikmaður, sem er nýr á sviðinu. Hann er góður leikmaður og við vitum að það verður erfitt að spila gegn Dortmund," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner