Fotbolti.net
15.03.08 - 08:08
Magnús Már Einarsson

Ágúst Bjarni í Völsung á láni (Staðfest)

Úr leik hjá Völsungi síðastliðið sumar.

Úr leik hjá Völsungi síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ásgeir Þór Ásgeirsson

Völsungur hefur fengið markvörðinn Ágúst Bjarna Garðarsson á láni frá Val þar til 25.apríl næstkomandi.
Möguleiki er á að sá lánssamningur verði framlengdur og að Ágúst muni leika með Völsungi í annarri deildinni í sumar.

Ágúst, sem er tvítugur, gekk til liðs við Val árið 2005 en hann kom til liðsins frá FH. Síðastliðið sumar var hann í láni hjá Haukum og lék fimm leiki með liðinu í annarri deildinni.

Völsungur auglýsti á dögunum eftir markverði þar sem Björn Hákon Sveinsson, markvörður liðsins undanfarin ár, er á leið til náms í Danmörku.

Liðið hefur nú fengið Ágúst Bjarna en hann hefur þegar fengið leikheimild og gæti leikið með Völsungi gegn Dalvík/Reyni í Lengjubikarnum á sunnudaginn.

Heimild: 123.is/volsungur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.