Fotbolti.net
15.04.10 - 17:02
Magnús Már Einarsson

Erdzan Beciri í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Erdzan Beciri (til hægri).

Erdzan Beciri (til hægri).

Canon

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Víkingur Ólafsvík hefur fengið slóvenska varnarmanninn Erdzan Beciri til liðs við sig.
Beciri hefur áður leikið á Íslandi því hann lék sjö leiki með HK í efstu deild sumarið 2008.

Beciri verður 25 ára á þessu ári en hann lék síðast með félagi í Króatíu.

Áður en Beciri fór til HK hafði hann leikið í efstu deild í Slóveníu og Póllandi og í næstefstu deild í Ungverjalandi.

Beciri á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Slóveníu, meðal annars með U21 árs landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.