Fotbolti.net
15.05.05 - 07:58
Hafliði Breiðfjörð

Niestroj og Ahandour til Grindavíkur (Staðfest)

Robert Niestroj er kominn í Grindavík

Robert Niestroj er kominn í Grindavík

Canon
Mounir Ahandour og Robert Niestroj fengu í gær leikheimild með Grindavík og verða því klárir í slaginn með liðinu í fyrsta leik efstu deildar karla gegn Val á Valsvelli klukkan 17:00 á morgun. Leikmennirnir höfðu áður náð samkomulagi við Grindvíkingana en fengu fyrst leikheimild í gær.
Mounir Ahandour er franskur framherji, 22 ára gamall en Robert Niestroj þýskur miðvallarleikmaður sem er 31 árs.

Nafn þess síðarnefnda þykir minna á nafn hollensku markamaskínunnar Ruud van Nistelrooy en í samtali við Fótbolta.net fyrr í maí sagði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindavíkur:

,,Já hann er með fínt nafn, ég vona að hann verði jafn góður leikmaður og hinn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.