Fotbolti.net
15.05.06 - 17:45
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Sebastian Frey til Fiorentina (Staðfest)

Sebastian Freyr í leik með Parma

Sebastian Freyr í leik með Parma

Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina gengu í dag frá kaupunum á franska markverðinum Sebastian Frey eftir að hafa loksins náð samkomulagi við Parma og verðið talið vera um fjórar milljónir punda.
Freyr kom til Flórens síðasta sumar á láni en talið er að hann hafi nú skrifað undir fimm ára samning við Fiorentina sem heldur honum hjá liðinu til sumarsins 2011. Í kjölfarið er framtíð Bogdan Lobont í vafa en hann kom til liðsins í janúar en Frey átti þá við meiðsli í hné að stríða.

Frey hefur alltaf sagt að hann vilji vera áfram hjá Fiorentina og fékk hann því sínu framgengt í dag en hann komst hinsvegar ekki í franska landsliðhópinn sem fyrr þar sem Michael Landreau var valinn framyfir hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.