15.05.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Vilhjálmur Ragnar Vilhjálmsson í Hvíta Riddarann (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Miðjumaðurinn skotfasti Vilhjálmur Ragnar Vilhjálmsson hefur gengið til liðs við Hvíta Riddarann úr þriðju deildinni.
Vilhjálmur sem er þrítugur í ár lék með Víkingi Ólafsvík í fyrra þar sem hann spilaði alla leiki liðsins í fyrstu deildinni.
Sumarið 2005 fór hann frá Víkingi Reykjavík til Ólafsvíkur á láni og þá spilaði hann einnig um stund það sumar með Vasteras SK í Svíþjóð.
Vilhjálmur sem er mikill spyrnusérfræðingur var áður á mála hjá Stjörnunni.