Fotbolti.net
15.05.11 - 07:08
Brynjar Ingi Erluson

Zlatko Krickic til ÍA (Staðfest)

Zlatko Krickic er kominn til ÍA

Zlatko Krickic er kominn til ÍA

Canon

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Íþróttafélagið á Akranesi hefur fengið framherjann unga og efnilega Zlatko Krickic til félagsins, en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Zlatko, sem er 19 ára gamall var síðast á mála hjá norska liðinu Fredrikstad, en liðið leikur í efstu deild þar í landi.

Hann lék fjölmarga æfingaleiki með liði Fredrikstad en tókst hins vegar ekki að leika opinberan leik með félaginu þar sem uppeldisfélag hans HK fór fram á uppeldisbætur fyrir leikmanninn sem Fredrikstad var ekki reiðubúið að greiða.

Hann hefur æft með ÍA undanfarið og var ákveðið í kjölfarið að gera tveggja ára samning við hann, en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í gær.

Zlatko lék 10 leiki með HK í fyrstu deildinni sumarið 2009 ásamt því lék hann tvo leiki í VISA bikarnum og skoraði tvö mörk.

Hann á að baki sex landsleiki með U17 ára landsliði Íslands þar sem hann skoraði eitt mark. Þá hefur hann farið á reynslu hjá ítalska liðinu Atalanta og Rauðu Stjörnunni frá Serbiu.

ÍA og Þróttur mætast næsta fimmtudag í annarri umferð 1. deildar og ætti því Zlatko að vera kominn með leikheimild fyrir þann leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.