Fotbolti.net
15.05.11 - 17:44
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Steinn í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Guðmundur Steinn í Víking Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Víkingur Ólafsvík úr fyrstu deild hefur fengið Guðmund Stein Hafsteinsson á láni frá Val.
Guðmundur Steinn er 21 árs gamall en hann getur leikið bæði frammi og framarlega á miðjunni.

Í fyrra skoraði hann fimm mörk í fimmtán leikjum með Val í Pepsi-deildinni en hann hóf meistaraflokksferil sinn þar árið 2007.

Guðmundur Steinn hefur leikið með Val alla sína tíð fyrir utan byrjun tímabils í fyrra þegar hann skoraði tvö mörk í sex leikjum á láni hjá HK.

Víkingur Ólafsvík fékk einnig Hilmar Þór Hilmarsson á láni frá Stjörnunni í gær en liðið tapaði 2-1 gegn Haukum í fyrstu umferðinni í fyrstu deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.