Fotbolti.net
15.05.11 - 23:50
Hafliði Breiðfjörð

Ingólfur Sigurðsson í Val (Staðfest)

Ingólfur Sigurðsson.

Ingólfur Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Ingólfur Sigurðsson er genginn í raðir Vals frá KR og skrifaði undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið nú rétt undir tólf í kvöld.
Ingólfur hefur mikið verið í umræðunni undanfarna daga í kjölfar þess að hann setti færslu á samskiptavefinn twitter í síðustu viku þar sem hann hvatti unga leikmenn til að halda sig frá KR.

Í kjölfar þess kom hann í viðtal við Fótbolta.net þar sem hann stuðaði marga með gagnrýni sinni á félagið og hefur ekkert æft með KR síðan þá.

Fylkir, ÍBV, Þór og Valur sýndu því áhuga að fá hann í sínar raðir en allt benti til þess nú á ellefta tímanum að hann yrði áfram hjá KR.

Valur komst svo að samkomulagi við KR um að fá hann í sínar raðir og hann er nú nýbúinn að skrifa undir samning við félagið.

Ingólfur Sigurðsson er 18 ára gamall og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið tvívegis á mála hjá Heerenveen í Hollandi.

Hann er uppalinn hjá Val en fór 14 ára gamall til Heerenveen og var þar í eitt ár. Hann kom svo aftur heim í Val en fór svo til KR þar sem hann var þar til síðasta sumar er hann gekk til liðs við Heerenveen.

Hann fékk svo samningi sínum rift þar og kom aftur í KR þaðan sem hann er nú farinn í Val.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.