Cristiano Ronaldo fór ánægður af velli í leik gegn Inter Milan í dag að sögn Andrea Pirlo, stjóra liðsins.
Ronaldo var skipt af velli á 70. mínútu leiksins er Juventus var manni færri. Liðið vann að lokum 3-2 sigur.
Ronaldo er ekki vanur því að fara af velli en þetta var í fyrsta sinn á tímabilinu sem honum er skipt útaf.
Pirlo segir að Portúgalinn hafi ekki látið það trufla sig og brosti hann út að eyrum í klefanum.
„Ég held að þetta hafi verið í fyrsta skiptið þar sem hann fór ánægður útaf," sagði Pirlo við Sky.
„Við vorum manni færri og hann hefði elt skugga á vellinum. Hann var ánægður og brosti í búningsklefanum."
Athugasemdir