15.06.06 - 06:51
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Maxi Lopez til Mallorca (Staðfest)

Maxi Lopez í baráttunni í Meistaradeildinni með Barcelona

Mynd: Getty Images

Maxi Lopez í baráttunni í Meistaradeildinni með Barcelona

Mynd: Getty Images
Hinn 22. ára gamli Maxi Lopez hefur gengið til liðs við Real Mallorca frá Barcelona á eins árs löngum lánssamningi.
Argentínumaðurinn hefur ekki fundið sig á Nou Camp og er búist við því að hann detti enn neðar í goggunarröðina eftir komu Eiðs Smára Guðjohnsen en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við stórveldið í dag eins og flestir vita.
Lopez spilaði aðeins 20 leiki fyrir félagið en hann kom frá River Plate í heimalandi sínu í janúar 2005. Hann fer því til Mallorca til að öðlast mikilvæga reynslu.
Lopez spilaði aðeins 20 leiki fyrir félagið en hann kom frá River Plate í heimalandi sínu í janúar 2005. Hann fer því til Mallorca til að öðlast mikilvæga reynslu.
