15.06.06 - 07:38
Guðmundur Dagur Ólafsson
Guerrero til HSV frá Bayern (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hamburg SV hafi keypt Paulo Guerrero framherja Bayern Munchen og Perú. Hinn 22 ári gamli Guerrero skrifar undir 4 ára samning við við HSV og mun ganga undir læknisskoðun á næstu dögum.
Hvorugt liðið hefur gefið upp kaupverðið fyrir leikmanninn.
"Paulo hefur sýnt hjá Bayern að hann er hættulegur framherji," sagði Dietmar Beiersdorfer hjá HSV við opinbera heimasíðu félagsins og bætti við: "Hann hefur haft góða tölfræði undanfarin ár, er teknískur og getur lagt upp fyrir samherja sína. Við erum vissir um að það á meira eftir að koma frá honum á næstu árum."
Þetta eru góðar fréttir fyrir Thomas Doll þjálfara HSV en hann hefur þegar misst þrjá framherja í sumar, þá Sergej Barbarez, Naohiro Takahara og Ailton.