Fotbolti.net
15.06.07 - 09:37
Magnús Már Einarsson

Mario Melchiot til Wigan (Staðfest)

Mario Melchiot til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur fengið varnarmanninn Mario Melchiot frítt frá franska félaginu Rennes. Þessi þrítugi leikmaður hefur áður leikið með Chelsea og Birmingham á Englandi.
,,Mario er leikmaður sem við höfum verið á eftir í nokkurn tíma. Hann er reyndur og fjölhæfur leikmaður og hann kemur með meiri gæði inn í liðið," sagði Chris Hutchings stjóri Wigan.

Melchiot hefur staðiðst læknisskoðun hjá Wigan og tilkynnt Rennes að hann sé á förum en hann hjálpaði franska félaginu að ná fjórða sæti í frönsku deildinni í vetur.

Melchiot er þriðji leikmaðurinn sem að Wigan fær í sumar en áður höfðu Titus Bramble og Antoine Sibierski komið frá Newcastle.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.