Fotbolti.net
15.06.09 - 20:36
Alexander Freyr Tamimi

Roberto Martinez tekinn við Wigan (Staðfest)

Roberto Martinez hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Wigan.

Roberto Martinez hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Wigan.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan hefur greint frá því að Roberto Martinez hafi tekið við stjórn félagsins og skrifaði Spánverjinn undir þriggja ára samning.
Það var hægara sagt en gert að fá þennan fyrrum knattspyrnustjóra Swansea yfir til félagsins en það tókst þó að lokum eftir að Wigan samþykkti að greiða fyrrnefnda félaginu ákveðnar skaðabætur.

Martinez var leikmaður Wigan í sex ár frá árinu 1995 til 2001 og er hann himinlifandi með að vera kominn aftur til félagsins sem á sérstakan stað í hjarta hans.

„Ég er himinlifandi með að vera kominn aftur til Wigan Athletic. Eins og þið vitið átti ég frábæran tíma þarna sem leikmaður og félagið hefur alltaf verið mér mjög náið,“ sagði hann á opinberri heimasíðu félagsins.

„Ég hlakka til að festa mig hér í sessi og mæta félögunum sem eru hér í bestu deild í heimi.“

„Ég get ekki beðið eftir mínum fyrsta leik á DW leikvanginum. Mér líður eins og það sé langur tími þangað til en það er líka mikil vinna framundan. Félagið hefur gert ótrúlega vel á undanförnum fimm árum, í fyrsta lagi með því að komast í úrvalsdeildina og halda sér þar og á seinasta ári voru þeir komnir mun ofar. Ég vil halda áfram að byggja á það góða starf sem Steve Bruce gerði hér.“

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.