15.06.11 - 22:08
Magnús Már Einarsson
Bebe til Besiktas (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Besiktas hefur fengið kantmanninn Bebe á láni frá Manchester United en samningurinn gildir út næsta tímabil. Besiktas mun borga Manchester United eina milljón evra fyrir lánssamninginn eða í kringum 870 þúsund pund.
Manchester United keypti hinn tvítuga Bebe óvænt frá Vitoria de Guimaraes síðastliðið sumar en talið er að kaupverðið hafi hljóðað upp á 7,4 milljónir punda.
Nokkrum mánuðum áður en United keypti Bebe var hans gamla félag Estrela da Amadora til í að selja hann á 125 þúsund pund.
Bebe lék nokkra leiki með Manchester United á síðasta tímabili en sá síðasti var gegn utandeildarliðinu Crawley í enska bikarnum í febrúar.
Bebe verður fjórði Portúgalinn í herbúðum Besiktas en fyrir hjá félaginu eru Ricardo Quaresma, Hugo Almeida og Simao Sabrosa.

Heimild: Goal