Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
banner
   sun 15. júní 2025 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Gattuso tekur við ítalska landsliðinu (Staðfest)
Mynd: EPA
Ítalska fótboltasambandið (FIGC) hefur ráðið Gennaro Ivan Gattuso í stöðu landsliðsþjálfara en þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu í dag.

Gattuso, sem lék 73 A-landsleiki og skoraði 1 mark á ferli sínum, tekur við liðinu af Luciano Spalletti sem var látinn taka poka sinn eftir síðasta landsleikjaglugga.

Hann verður formlega kynntur sem nýr þjálfari landsliðsins á blaðamannafundi í Róm á fimmtudag, en honum er ætlað að stýra liðinu á HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári.

Gattuso varð heimsmeistari með landsliðinu árið 2006 og er talinn einn af bestu varnarsinnuðu miðjumönnum allra tíma, en hann lék lengst af með Milan ásamt því að hafa spilað með Rangers, Sion, Salernitana og Perugia.

Ítalinn hefur komið víða við í þjálfun. Síðast stýrði hann Hajduk Split í Króatíu, en rifti samningi sínum þar eftir slakan árangur á tímabilinu. Einnig hefur hann þjálfað Milan, Napoli, Valencia, Marseille, Pisa, OFI Crete, Palmero og Sion.

Á næstu dögum mun sambandið ráða menn inn í teymið hans Gattuso. Líklega mun Gattuo fá fleiri goðsagnir með sér á bekkinn, en þeir GIanluigi Buffon, Gianluca Zambrotta, Andrea Barzagli og Leonardo Bonucci hafa allir verið nefndir í því samhengi.

Gattuso mun stýra landsliðinu í fyrsta sinn í undankeppni HM í september. Ítalía er í 3. sæti I-riðils með 3 stig eftir tvo leiki.


Athugasemdir
banner